Vara við hættu á Fimmvörðuhálsi

Útivistarfélögin Ferðafélag Íslands og Útivist og Björgunarsveitin Dagrenning á Hvolsvelli vara fólk við hættulegum aðstæðum á gönguleiðinni yfir Fimmvörðuháls. Gil og sprungur hafa opnast á leiðinni síðustu ár samhliða því að jökullinn hefur hopað. Einnig hafa myndast brattar brekkur og skriður á hluta leiðarinnar milli Baldvinsskála og Fimmvörðuhálsskála þar sem áður var snjór eða jökulís. Einnig hafa komið í ljós snjóbrýr þar sem snjó vetrarins hefur tekið upp. Undir þeim renna jökulár. Í tilkynningu félaganna segir að mjög hættulegt geti verið að fara yfir jökulbrýrnar eða nálgast þær. Félögin vara fólk við því að leggja af stað á göngu yfir Fimmvörðuháls nema það sé vel búið til ferðarinnar, með viðeigandi útbúnað og föt og hafi kynnt sér aðstæður vel. Þau segja að ekki sé ráðlegt að
Vara við hættu á Fimmvörðuhálsi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd