Fyrirtækið Heilsuvernd hefur samið um rekstur á nýju hjúkrunarheimili í Þursaholti á Akureyri. Fyrirtækið rekur fyrir bæði hjúkrunarheimilin í bænum.Áætlað er að þriðja hjúkrunarheimili Heilsuverndar rísi í Þursaholti, norðan við smábátahöfnina á Akureyri. Reitir vann útboð um bygginguna, sem verður níu þúsund og eitt hundruð fermetrar með rými fyrir 140 íbúa.Seinna útboðið snerist svo um rekstur heimilisins, þar varð Heilsuvernd ofan á en þau reka fyrir Hlíð og Lögmannshlíð á Akureyri. MIKIL ÞÖRF FYRIR FLEIRI RÝMI OG BÆTTAN AÐBÚNAÐ „Nú fer bara í hönd samstarf milli aðila sem á að ganga tiltölulega hratt fyrir sig. Við höfum beðið lengi eftir því að geta endurbætt aðstöðu á Akureyri sem hefur legið lengi fyrir að er ekki alveg nægjanlega góð og þetta mun breyta því verulega“, segir Tei