Björgunarsveitir á Austurlandi hafa verið kallaðar út vegna tilkynningar um að maður hafi fallið í Stuðlagil. Þyrla Landhelgisgæslunnar hefur verið kölluð út, að sögn Jóns Þórs Víglundssonar upplýsingafulltrúa Slysavarnafélagsins Landsbjargar.„Við erum að bregðast við tilkynningu um að einstaklingur hafi farið í ána,“ segir Jón Þór. Útkallið hafi borist skömmu eftir klukkan 13:00.„Allar björgunarsveitir á Austurlandi voru kallaðar út á hæsta forgangi.“