Fresta þurfti skýrslutökum af erlendum læknum sem meðhöndluðu brotaþola í Reykholtsmálinu í dag. Illa gekk fyrir túlk að þýða læknisfræðileg hugtök vitnisins. Þeir erlendu læknar sem gefa áttu skýrslu eru á Möltu en fjallað hefur verið um að brotaþoli í málinu fékk aðhlynningu þar eftir að hafa orðið fyrir ofbeldi á Íslandi.Sex Íslendingar, fimm karlar og ein kona, eru ákærð fyrir að halda manni föngnum á heimili sínu í Reykholti í Bláskógabyggð og beita hann harkalegu ofbeldi til þess að hafa af honum fé í apríl 2024.Sækjandi og dómari voru sammála um að fresta þyrfti skýrslutöku af lækninum og skýrslutöku af öðrum erlendum læknum þar til annar túlkur væri fær um að sinna verkefninu.Búist var við því að skýrslutökum í málinu myndi ljúka í dag en ósennilegt þótti að annar túlkur fengist í