Hlutabréfaverð í Sýn hefur lækkað um fimm prósent í morgun á sama tíma og verðmæti hlutabréfa í Símanum hefur aukist um tvö og hálft prósent. Þetta gerist morguninn eftir að tilkynnt var að ekkert yrði af kaupum Ása, móðurfélags Símans, á fjölmiðlum Sýnar á borð við Vísi og Bylgjuna.Frekar lítil viðskipti eru að vísu á bak við breytingarnar í morgun. Bréf í Sýn hafa gengið kaupum og sölum fyrir átta milljónir og bréf í Símanum fyrir 45 milljónir.Sýn og Síminn greindu frá því í mars að samkomulag hefði náðst um helstu skilmála fyrir því að Síminn myndi kaupa vefmiðla og útvarpsstöðvar af Sýn fyrir rúma fimm milljarða króna.Í gærkvöld greindu Sýn og Ásar frá því að ekki yrði af viðskiptunum. Hvaða fjölmiðla stóð til að selja? Viðræðurnar sneru um kaup Símans á netmiðlunum Vísi, já.is, Innher