Sjö af hverjum tíu félagsmönnum í Visku eru hlynnt því að Ísland haldi áfram aðildarviðræðum við Evrópusambandið. Þetta er niðurstaða könnunar sem félagið gerði meðal félagsmanna. 70 prósent segjast hlynnt, 22 prósent andvíg og 7 prósent hafa ekki gert upp hug sinn.Félagar voru spurðir spurningarinnar: Hversu hlynnt(ur) eða andvíg(ur) ertu því að Ísland haldi áfram aðildarviðræðum við Evrópusambandið? Könnunin var gerð í júlí en unnið úr henni í ágúst, að loknum sumarfríum.54 prósent segjast mjög hlynnt því að ljúka viðræðum en 14 prósent eru því mjög andvíg. Ef aðeins eru teknir þeir sem sögðust ætla að greiða atkvæði í þjóðaratkvæðagreiðslunni sögðust 78 prósent hlynnt því að halda viðræðum áfram en 16 prósent andvíg.Skoðanir meðal félagsmanna Visku eru skiptari þegar kemur að inngöngu í