„Markmiðið er að fjölga störfum hér á Íslandi“

Flugstörf verða ekki færð úr landi með kaupum Icelandair á tæplega helmingshlut í Fly Play Europe á Möltu, þó að lítill hluti starfsemi félagsins færist þangað. Þetta segir Bogi Nils Bogason forstjóri Icelandair. Hann vonar að óánægja Félags íslenskra atvinnuflugmanna með kaupin bitni ekki á kjaraviðræðum félaganna.„Við höfum verið í endurnýjun á flotanum hérna á Íslandi og erum að taka við fjölmörgum nýjum Airbus-vélum í flotann núna á næstu árum. Það er heljarinnar verkefni,“ segir Bogi.„Á sama tíma verðum við áfram með nokkrar eldri 757-vélar í rekstri hjá Loftleiðum. Að reka eldri vélar af annarri tegund, örfáar, það er óhagkvæmni að gera það hér á Íslandi. Þannig að við erum að ná fram einfaldleika og hagræðingu með því að færa þá starfsemi annað.“Hugsunin sé að fjölga störfum á Íslan
„Markmiðið er að fjölga störfum hér á Íslandi“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd