Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur telur áhrif loftmengunar vegna Sæbrautarstokks vera vanmetin og að rík þörf sé á góðum mengunarvörnum. Einnig þurfi að kanna betur hvort mengaður jarðvegur á framkvæmdasvæði geti komist í snertingu við grunnvatn og ofanvatn og skoða mögulegar mótvægisaðgerðir.Þetta kemur fram í umsögn Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur um Sæbrautarstokk í skipulagsgátt.Þar segir að niðurstöður úr færanlegri mælistöð árin 2007 og 2009 hafi sýnt svipaða loftmengun og við Grensásveg. Umferð hafi hins vegar aukist mikið síðan þá og því líklegt að mengun hafi einnig aukist.Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur vill að skynjarar verði settir upp í áttina að næstu íbúðabyggð frá framkvæmdasvæðinu. Einfaldir skynjarar hafi hins vegar gefið misgóða raun og geti vanmetið mengun.Heilbrigðiseft