Skemmdarverkið á Nord Stream 2 ekki úkraínsk hernaðaraðgerð samkvæmt Zelensky

Volodymyr Zelensky Úkraínuforseti segir af og frá að þarlendir ráðamenn hafi fyrirskipað skemmdarverk á Nord Stream 2 gasleiðslunni í Norðursjó í júlí 2022. Þetta var svar Zelenskys við spurningu fréttamanns danska ríkisútvarpsins um meinta ábyrgð Úkraínumanna á blaðamannafundi í höfuðborginni Kyiv í gær.„Það sem gerðist hefur ekkert með okkur að gera,“ sagði forsetinn. Hann vildi ekki ræða hvort Úkraína hagnaðist á að Nord Stream væri óvirk. Úkraínsk yfirvöld aðstoði við yfirstandandi rannsókn og vitað væri að sakborningur væri í haldi. Ríkissaksóknari Þýskalands er á öðru máli en Zelensky, samkvæmt ákæruskjölum dagsettum í júní.Þau telja skemmdarverkið úkraínska hernaðaraðgerð unna af sérþjálfaðri sveit. Fyrrverandi liðsforingi í Úkraínuher, Serhii Kuznietsov, er í haldi þýskra lögregluy
Skemmdarverkið á Nord Stream 2 ekki úkraínsk hernaðaraðgerð samkvæmt Zelensky

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd