Hollenska ríkisútvarpið tilkynnti í morgun að það ætli ekki að taka þátt í Eurovision á næsta ári. Stjórnendur segja að keppnin geti ekki lengur talist hlutlaus vegna viðbragða við stríðinu á Gaza.„Átök á alþjóðavettvangi hafa óneitanlega haft áhrif á keppnina og grafið undan hlutleysi hennar. Eurovision er orðin vettvangur sundrungar,“ segir Taco Zimmerman framkvæmdastjóri.Holland var á meðal fimm ríkja sem sniðgengu keppnina í ár. Hin fjögur eru Ísland, Írland, Spánn og Slóvenía.Áhorfendum Eurovision fækkaði á milli ára. Í ár horfðu 131 milljón á keppnina sem er 35 milljónum færri en árið 2025. Fyrr í þessum mánuði tilkynntu skipuleggjendur Eurovision að þjóðir sem heyja stríð fái ekki að halda keppnina.Keppnin verður haldin í borginni Burgas í Búlgaríu dagana 12. til 15. maí á næsta ári