Rokkhljómsveitin Dimma sendi frá sér nýtt lag í dag og kynnti um leið nýjan söngvara og trommara í hljómsveitinni. Þeir eru Ivan Mendez, sem hefur sungið með hljómsveitinni Sólförum, og Skúli Gíslason, sem hefur barið trommurnar fyrir SIGN.Stefán Jakobsson hætti í Dimmu í apríl eftir að hann var sýknaður af ákæru um líkamsárás. Hann sagði fólk sem hann taldi vera vini sína hafa brugðist sér á öllum stigum málsins. Maðurinn sem kærði Stefán fyrir líkamsárás tengist eiginkonu bassaleikara hljómsveitarinnar.Ingólfur Geirdal gítarleikari brást við með yfirlýsingu á samfélagsmiðlum Dimmu og vísaði ummælum Stefáns á bug. Hann sagði þau vera ærumeiðandi óhróður og ósannindi. Hann sagði að Silli bassaleikari, og bróðir Ingólfs, og kona hans hefðu ekki tekið afstöðu gegn Stefáni heldur reynt að kom