Sjá mátti flugfarþega í gríðarlöngum biðröðum á Gardermoen-flugvellinum norðan Óslóar í Noregi í morgun þar sem verkfall tólf flugumferðarstjóra, þar og á Flesland-flugvellinum í Bergen, sem hófst klukkan 11 á föstudagsmorgun, hefur sett flugsamgöngur innan- sem utanlands, til og frá Noregi, algjörlega úr skorðum.