Búist við að skýrslutökur klárist í dag

Skýrslutökur halda áfram í Reykholtsmálinu og er gert ráð fyrir að þeim ljúki í málinu í dag. Starfsmenn lögreglu og læknar gefa skýrslur í dag.Sex Íslendingar, fimm karlar og ein kona, eru ákærð fyrir að halda manninum föngnum á heimili sínu í Reykholti í Bláskógabyggð og beita hann harkalegu ofbeldi til þess að hafa af honum fé í apríl 2024.Náist að klára skýrslutökur í dag getur málflutningur í málinu hafist á morgun. Þá ætti að skýrast hvaða refsingar verður krafist. Að málflutningi loknum verður málið lagt í dóm.Allir ákærðu hafa gefið skýrslu í málinu ásamt brotaþola. Fyrir helgi voru teknar skýrslur af starfsmönnum Símans og vitnum úr Reykholti.
Búist við að skýrslutökur klárist í dag

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd