Bíll varð alelda

Eldur kviknaði í bíl á Víðimel í Vesturbæ Reykjavíkur í morgun. Bíllinn varð alelda og steig mikill svartur reykur til himins. Slökkviliðsmenn voru fljótir á vettvang og slökktu eldinn. Enginn slasaðist.Reykurinn steig til himins og mátti sjá hann víða að. Eldurinn náði þó ekki að breiðast út.
Bíll varð alelda

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd