Hátekjulisti Heimildarinnar 2026 er kominn út og sýnir tekjur efsta 1% skattgreiðenda á Íslandi, 3.600 einstaklinga, á síðasta ári. Ólíkt öðrum tekjulistum inniheldur úttekt Heimildarinnar ekki aðeins launatekjur heldur einnig fjármagnstekjur. Upplýsingarnar fengust með ítarlegri leit Heimildarinnar í álagningarskrá Skattsins. Fjármagnstekjur voru langstærsti hluti tekna þeirra sem efst eru á listanum en til þeirra teljast meðal annars vaxtatekjur, leigutekjur, söluhagnaður...