Sprengdu bát sem þeir sögðu flytja fíkniefni

Yfirstjórn Bandaríkjahers í Mið- og Suður-Ameríku greindi frá því í morgun að herinn hefði skotið á og eyðilagt bát sem talinn er hafa verið notaður til að smygla fíkniefnum til Bandaríkjanna. Tveir voru um borð og voru báðir drepnir. Bandaríkjaher hefur ítrekað ráðist á báta sem grunur leikur á að séu notaðir við fíkniefnasmygl. Yfir 200 hafa verið drepnir í slíkum árásum frá því í september í fyrra. Þær eru hluti af harðari aðgerðum gegn meintum smyglurum.Hart hefur verið deilt á árásirnar og lögmæti þeirra dregið í efa. Bandarísk stjórnvöld hafa fullyrt að bátarnir hafi verið notaðir til smygls en ekki fært óumdeildar sönnur á slíkt. Ekki hefur heldur verið látið á það reyna fyrir dómstólum áður en ráðist hefur verið á bátana.Bandaríkjaher birti færslu á X í dag. Þar var greint frá árás
Sprengdu bát sem þeir sögðu flytja fíkniefni

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd