„Í Noregi hefur atvinnulífið alltaf verið mjög hlynnt aðild að Evrópusambandinu, en hér er stór hópur fyrirtækja á móti, auk þess sem Høyre, frjálslyndi íhaldsflokkurinn í Noregi hefur ávallt verið hlynntur ESB-aðild, á meðan Sjálfstæðisflokkurinn virðist vera harður á móti,“ segir Alstadheim. Hann hefur í talsverðan tíma fylgst með umræðunni hér á landi í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar um næstu helgi, og var staddur hér í síðustu viku.Alstadheim hefur áhugavert sjónarhorn á þessa umræðu; hann hefur um langt skeið fylgst með norskum stjórnmálum, einnig á þeim tíma þegar Norðmenn voru að semja um aðild að Evrópusambandinu og höfnuðu svo aðildarsamningi í nóvember 1994.Nýleg bók Alstadheims, Alle tok feil, sem kom út fyrir tveimur árum, fjallar einmitt um umræðuna í Noregi fyrir þjóðat