Rigning um land allt

Það rignir og blæs á landsmenn í dag. Mest rignir á Suðaustur- og Vesturlandi þar sem útlit er fyrir talsverða rigningu. Veðrið gengur þó niður í kvöld og á morgun er útlit fyrir rólegri vind og takmarkaða úrkomu.Veðurspáin er svohljóðandi:Austan og suðaustan 8-15 metrar á sekúndu, en norðlægari vestantil. Rigning, talsverð um tíma suðaustan- og vestanlands, en vestlægari og styttir smám saman upp undir kvöld.Suðvestlæg eða breytileg átt, 3-10 metrar á sekúndu á morgun. Dálítil rigning suðaustan- og austanlands eftir hádegi, en annars skýjað með köflum og stöku skúrir.Hiti 8 til 17 stig
Rigning um land allt

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd