Luxon: Ekki má umbera þann skaða sem börn verða fyrir af völdum samfélagsmiðla

Nýsjálenska ríkisstjórnin kynnir í dag frumvarp til laga sem ætlað er að banna samfélagsmiðlanotkun barna undir 16 ára aldri. Nýja-Sjáland bætist þar með í stækkandi hóp landa sem vilja halda börnum frá miðlum á borð við TikTok og Instagram, þar sem nágrannaríkið Ástralía reið á vaðið í desember.Forsætisráðherrann Christopher Luxon segir ekki hægt að umbera þann skaða sem unga kynslóðin geti orðið fyrir af völdum illviðráðanlegs utanaðkomandi þrýstings á samfélagsmiðlum, sem væru auk þess ávanabindandi og fullir af efni sem ekki hæfði börnum.Vitað væri að eitt af hverjum þremur börnum á aldrinum þrettán til sautján ára verji hið minnsta fimm klukkustundum á dag á samfélagsmiðlum. Luxon sagði samfélagsmiðlafyrirtækjum, eftir laganna bókstaf, verða skylt að tryggja með öllum tæknilegum ráðum
Luxon: Ekki má umbera þann skaða sem börn verða fyrir af völdum samfélagsmiðla

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd