Lögreglumenn handtóku mann í miðborginni eftir að tilkynning barst um að hann væri að munda þar hníf.Maður sem neitaði að yfirgefa baklóð lögreglustöðvarinnar við Hlemm fékk að gista klefa í staðinn.RÚV / Ragnar VisageVið yfirheyrslu kom á daginn að þarna var á ferð erlendur ferðamaður sem notaði hnífinn við að tína blóm. Hann var þá látinn laus að því er segir í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.Maður sem ógnaði öðrum með eggvopni í því umdæmi lögreglunnar sem sinnir Breiðholti og Kópavogi var á bak og burt þegar lögreglumenn bar að, sem telja hann hafa forðað sér með strætisvagni. Maður var handtekinn fyrir að neita þrátt fyrir ítrekuð tilmæli að yfirgefa port lögreglustöðvarinnar við Hlemm og fékk þess í stað að gista þar fangaklefa.