Tvö börn voru drepin ásamt því sem sjö börn og tveir fullorðnir særðust til viðbótar þegar brak úr úkraínskum dróna féll á einkarekinn leikskóla í Krasnodar-fylki í Rússlandi.Hér má sjá Krasnodar-fylki í Rússlandi.RÚV/Grafík / Kristrún EyjólfsdóttirHéraðsstjórinn greindi frá þessu í færslu á samskiptaforritinu Telegram. Jafnframt hafi kviknað eldur í vöruhúsi eftir að dróni skall á því. Rússneski vefverslunarrisinn Ozon sagði engan hafa sakað í miklum eldsvoða í vöruhúsi hans í Krasnodar eftir drónaárás.Atlögur Úkraínumanna að rússneskum vöruhúsum hafa valdið milljarða bandaríkjadala efnahagsskaða og Úkraínuher boðaði í gær hrinu árása á Ozon í kjölfar svipaðra árása á vöruhús vefverslunarinnar Wildberries.