Knýja á leiðtoga um afhendingu loftvarnarbúnaðar og aukinn þrýsting á Rússa

Úkraínumenn taka á móti leiðtogum Bandalags hinna viljugu ríkja í dag til að knýja á um nauðsynlegan loftvarnarbúnað og aukinn þrýsting á rússnesk stjórnvöld. Linnulausar árásir Rússlandshers með langdrægum eldflaugum hafa síðustu vikur orðið fleiri almennum borgurum að bana en nokkru sinni frá fyrstu mánuðum innrásarinnar.Eftir hverja árás hefur Volodymyr Zelensky forseti beðið samherja um loftvarnarbúnað, sem orðinn er af skornum skammti. Varnarvopn framleidd í Úkraínu ráða ekki við flaugarnar sem fljúga afar hratt, í háum boga, þannig að erfitt er að stöðva þær.Breski forsætisráðherrann Andy Burnham verður í Kyiv í sinni fyrstu utanlandsför frá því hann tók við embætti og búist er við að hann tilkynni heimild breskra stjórnvalda til framleiðslu á langdrægum SCALP-eldflaugum í Úkraínu. E
Knýja á leiðtoga um afhendingu loftvarnarbúnaðar og aukinn þrýsting á Rússa

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd