Raphaël Glucksman boðar forsetaframboð

Raphaël Glucksmann, leiðtogi stjórnmálahreyfingarinnar Place Publique, hefur boðað framboð fyrir forsetakosningarnar í Frakklandi á næsta ári. Raphaël Glucksmann boðar forsetaframboð í Frakklandi næsta vor.EPA / LUDOVIC MARIN / POOLGlucksmann tilkynnti framboðið á TF1 sjónvarpsstöðinni í gær og sagðist vilja auka vegsemd og virðingu Frakklands að nýju. Glucksmann hefur setið á Evrópuþinginu fyrir bandalag sósíalista og demókrata síðan 2019. Hann var einnig um hríð aðstoðarmaður Michaels Saakashvili, fyrrverandi forseta Georgíu. Greinendur telja Glucksmann höfða frekar til vinstrisinnaðra kjósenda en Jean-Luc Mélenchon, leiðtogi Óbugaðs Frakklands, La France insoumise. Hann þykir harla langt til vinstri á pólítíska litrófinu.
Raphaël Glucksman boðar forsetaframboð

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd