Tiangong Ultra sló í dag heimsmetið í 100 metra hlaupi karla.Þetta gerðist á keppnisleikum vélmenna sem eru hluti af ráðstefnu um þessa tækni í Peking í Kína. Vélmennið kom í mark á 9,39 sekúndum, tæplega tveimur tíundu úr sekúndu undir heimsmeti Usains Bolt. Þar sem Tiangong Ultra er ekki karl heldur Bolt metinu. Vélmennin slógu einnig gildandi heimsmet í hástökki og náðu prýðilegum árangri í öðrum greinum, þó að öðru hverju sæist að sum eigi nokkuð í land með að ná bestu íþróttamönnum heims.