Ekkert verður af kaupum Ása á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar

Ekkert verður af kaupum Ása hf., sem áður var Síminn, á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar. Á daginn kom að ekki næðist samkomulag um viðskiptin eftir viðræður í kjölfar áreiðanleikakönnunar, að því er segir í aðskildum tilkynningum beggja fyrirtækja í kvöld. Boðað var 12. mars að félögin hefðu náð samkomulagi um helstu skilmála vegna kaupa Símans á vefmiðlunum Vísi, já.is, Innherja og Bland.is ásamt útvarpsstöðvunum Bylgjunni, Léttbylgjunni, Gullbylgjunni, FM957, X977 og hlaðvarpsveitunni Tal. Kaupverðið var sagt rúmir fimm milljarðar króna og árstekjur miðlanna rúmir þrír. Þá sagði Sýn söluna ætlaða til að einfalda starfsemi fyrirtækisins og styrkja rekstrargrundvöll þess til framtíðar. Síminn sagði kaupin á miðlunum falla vel að að því að fyrirtækið veiti fréttir og afþreyingu. Viðskiptin voru
Ekkert verður af kaupum Ása á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd