„Það var bara eins og að vera kýldur í magann,“ segir Davíð Þór Jónsson, prestur við Langholtskirkju, um hvernig honum leið þegar hann fékk fregnir af andláti æskuvinar síns og samstarfsfélaga til fjölda ára, Steins Ármanns Magnússonar, leikara.„Og í raun og veru er það fyrst núna, tveimur sólarhringum síðar, þegar fólk er að tala við mann og votta manni samúð sem það er farið að síast í gegnum raunveruleikaskynið. Að þetta hafi raunverulega gerst. Þetta er eins og vondur draumur.“Steinn Ármann lést á heimili sínu á föstudag. Hann var 61 árs. VINÁTTA SEM SPANNAÐI RÚM 50 ÁR Davíð Þór og Steinn Ármann kynntust í Víðistaðaskóla fyrir rúmum fimmtíu árum, þá 10 ára gamlir. Davíð Þór segir að fyrstu kynni hafi verið langt frá því að vera vinátta.„Mig minnir að okkur hafi verið att saman í sla