Vilja að aldursviðmið um börn í vopnalögum verði upp­færð

Áki Ármann Jónsson, formaður Skotveiðifélags Íslands, Skotvís, segir félagið hafa kallað eftir því að aldursviðmið í vopnalögunum er varðar börn verði uppfærð. Miða ætti við 18 ára í stað tuttugu og að rýmka ætti heimildir fyrir þátttöku barna í skotveiðum. Þórir Ingvarsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, segir vopnalögin alveg skýr. Börn megi ekki meðhöndla skotvopn.
Vilja að aldursviðmið um börn í vopnalögum verði upp­færð

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd