Syngjandi leikskólabörn með 90 ára harmonikkuleikara

Sigurður Hannesson í Garðabæ er ekki af baki dottinn, orðinn níræður og spilar á harmonikku eins og ekkert sé. Það skemmtilegasta sem hann gerir er að bjóða leikskólabörnum heim til sín þar sem hann spilar á nikkuna og þau syngja hressilega með.„Ég spila fyrir þau nokkur lög á harmonikkuna og þau syngja og þá skemmtum við okkur öllsömul saman, það er það flotta við þetta. Það er alltaf gaman að gera eitthvað svona nýtt – ég hef ekki séð þetta gert áður hjá neinum,” segir Sigurður.Starfsmenn leikskólans voru mjög ánægðir með framtakið og færðu Sigurði gjöf í þakklætisskyni.Voruð þið búin að æfa ykkur lengi fyrir heimsóknina, syngja og syngja?„Já, við erum náttúrulega alltaf að syngja með þeim og þurftum að æfa að syngja hátt og skýrt núna,” segir Ester Sól Jónsdóttir.„Þetta eru börn á aldri
Syngjandi leikskólabörn með 90 ára harmonikkuleikara

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd