Samtök ferðaþjónustunnar hafa gagnrýnt harðlega nýleg áform fjármála- og efnahagsráðherra um að hækka virðisaukaskatt á aðgang að baðlónum úr 11% í 24%. Samtökin telja þetta brot á fyrri yfirlýsingum stjórnvalda um að ekki yrði hækkaður virðisaukaskattur á ferðaþjónustu.Fjármálaráðherra segir það ekki koma á óvart að forsvarsmenn baðlóna láti í sér heyra og kvarti þegar sérmeðferð sem þeir hafi notið góðs af sé afnumin.„Það er ákveðin starfsemi sem Íslendingar eru sammála um að fjármagna og þjónusta sem ríki og sveitarfélög veita. Og það er þá með einhverjum hætti okkar verkefni að velja minnst skaðlegu leiðirnar til að gera það. Það er okkar mat að þetta sé breyting sem sé skynsamleg,“ segir Daði Már.Samtök ferðaþjónustunnar kalla sérstaklega eftir því að hætt verði við skattahækkunina og