Bogi Nils Bogason forstjóri Icelandair og Sveinn Logi Sölvason forstjóri Emblu Medical, móðurfélags Össurar, eru sammála um að þunglamaleg reglugerð Evrópusambandsins geti þrengt að rekstri fyrirtækja innan sambandsins og gæta þurfi að samkeppnishæfni þeirra. Hins vegar stuðli vinnumarkaðsmódelið hérlendis að óstöðugleika og geti verið heilmikil áskorun í fyrirtækjarekstri.