Heilsa Haralds, Noregskonungs, hefur hrakað um helgina.Þetta kemur fram í tilkynningu frá norsku konungshöllinni til norskra fjölmiðla fyrir stuttu.Þar segir að Haraldur sé á sýklalyfjameðferð vegna bakteríusýkingar í blóði. Hann svari meðferð vel.Haraldur var lagður inn á sjúkrahús 17.ágúst vegna veikinda. HEFUR VERIÐ Í MEÐFERÐ VEGNA BLÓÐLEYSIS Haraldur, sem er 89 ára, hefur síðustu vikur verið í meðferð vegna blóðleysis sem orsakast af skorti á rauðum blóðkornum. Sjúkdóminn er yfirleitt hægt að meðhöndla með lyfjum.Haraldur hefur verið tæpur til heilsunnar um nokkurt skeið og var síðast í febrúar lagður inn á sjúkrahús á Tenerife þar sem hann var í fríi.