Bandaríska þungarokkshljómsveitin Demon Hunter hefur höfðað mál á hendur Netflix vegna kvikmyndarinnar KPop Demon Hunters sem sló í gegn í fyrra.Hljómsveitin segir líkindi nafnanna rugla neytendur og ógna vörumerki sem hún hefur byggt upp áratugum saman. ÞUNGAROKKSSVEIT RUGLAÐ SAMAN VIÐ TEIKNIMYNDASTJÖRNUR Demon Hunter er fimm manna kristin þungarokkshljómsveit frá Seattle. Tónlist sveitarinnar er lýst sem árásargjarnri en um leið tilfinningaþrunginni. Hljómsveitin gaf út sína tólftu breiðskífu í september og er með rúmlega 350 þúsund hlustendur á mánuði á Spotify.Í tónlist Netflix-kvikmyndarinnar kveður við annan tón. Kpop Demon Hunters hófst sem teiknimynd Netflix um Kpop stúlknasveitina Huntr/X og kom út í september.Tónlistin úr myndinni hefur farið sigurför um heiminn, mikið magn sö