Malbikun hefur áhrif á umferð í kvöld og í nótt

Vegagerðin vekur athygli á malbikunum og malbiksviðgerðum sem kunna að hafa áhrif á vegfarendur í kvöld og í nótt.„Sunnudagskvöld 23. ágúst, kl. 20:00-23:30, verður malbikað í norðurátt frá Korpúlfsstaðavegi. Einnig verður malbikað í norðurátt frá Skarhólabraut kl. 21:00-01:30. Þrengt verður í eina akrein framhjá vinnusvæðum,“ segir á Umferðin.is.Þá er stefnt á malbiksviðgerðir á Vesturlandsvegi undir Hafnarfjalli frá 20:00 til 07:00.„Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin. Vinnusvæðin eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum,“ segir í tilkynningu.Malbikunarframkvæmdir. Athugið að myndin er af malbikun á Suðurlandsvegi.RÚV / Jón Þór Víglundsson
Malbikun hefur áhrif á umferð í kvöld og í nótt

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd