Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti slasaðan mann á Sólheimajökul síðdegis. Björgunin var önnur af tveimur á Suðurlandi í dag.Fyrr í dag var útkall á Fimmvörðuhálsi vegna ferðamanns sem var hnjaskaður á fæti, segir Jón Þór Víglundsson, upplýsingafulltrúi Landsbjargar. Björgunarsveitirnar Björg frá Eyrarbakka og Dagrenning frá Hvolsvelli héldu í Fimmvörðuskála til að sækja manninn.Dagrenningarmenn komust að honum í Fimmvörðuskála og gátu flutt hann til byggða í bíl. Honum var ekið í Skóga þar sem hann afþakkaði að fá far með sjúkrabíl.Eftir að Dagrenningarmenn voru komnir að ferðamanninum barst seinna útkallið vegna mannsins á Sólheimajökli.„Eyrbekkingar fóru áfram í það ásamt fleirum sem voru kallaðir út,“ segir Jón Þór og nefnir björgunarsveitarfólk frá Hellu, Vík í Mýrdal og Vestmannaeyjum s