Ströng inntökuskilyrði gilda um þá sem ætla sér að læra lögreglufræði. Bæði þarf að standast þrekpróf og skriflegt próf, ásamt því að standast bakgrunnsskoðun og læknisskoðun. Eitt af því sem er kannað er litasjón umsækjenda.Þeir sem ætla sér að verða lögreglumenn þurfa að geta greint sjö rétt af hverjum tíu spjöldum á ishihara-litsjónprófi. Strangari reglur gilda síðan um þá sem ætla sér að verða flugmenn, skipstjórar eða flugumferðarstjórar. VERÐA AÐ GETA GREINT LITI TIL AÐ BERA KENNSL Á FÓLK OG HLUTI Ólafur Örn Bragason, forstöðumaður mennta- og starfsþróunarseturs lögreglunnar, segir að kröfurnar fyrir námið séu síbreytilegar og í stöðugri skoðun. Hins vegar sé mikilvægt að lögreglumenn geti greint liti.Oftar en ekki komi fyrir að lýst sé eftir ákveðnum lit af bíl eða manneskju í ák