Dómsmálaráðherra vill efla samhæfingu stofnana í baráttunni gegn mansali með nýrri aðgerðaáætlun sem hefur verið birt í samráðsgátt stjórnvalda. Markmiðið er að auka samstarf og skýra boðleiðir, ekki síst þegar kemur að börnum sem þolendum mansals.Stuðla á að markvissari fræðslu meðal fagfólks um mansal og hvernig bregðast megi við þegar grunur leikur á að einstaklingur sé þolandi mansals. Þá verður sérstaklega stuðlað að fræðslu og færniuppbyggingu meðal lögreglu og annarra innan réttarvörslukerfisins með það að markmiði að þannig fjölgi málum til rannsóknar og dómum yfir gerendum mansals.Nær öll skráð mansalsmál á Íslandi varða kynferðislega hagnýtingu eða nauðungarvinnu, samkvæmt gögnum Bjarkarhlíðar.Kynjahlutföll þolenda mansals sem leitað hafi til Bjarkarhlíðar séu nánast jöfn þó að b