Rúmlega 745.000 laxar drápust í íslensku fiskeldi í júní. Það er óvenjumikið og mestu afföll sem hafa orðið í einum mánuði síðan í desember 2024.Karl Steinar Óskarsson, deildarstjóri fiskeldisdeildar hjá Matvælastofnun, segir svona mikil afföll í einum mánuði óvenjuleg. „Það er toppur í júní á þessu ári þar sem að yfir 740.000 fiskar drápust, það er um 3% miðað við þá fiska sem eru í sjó.“Karl segir MAST hafa fengið skýringar frá þeim tveimur fiskeldisfyrirtækjum þar sem afföllin hafi verið mest.„Það er þarna útsetning á eldissvæði á Austfjörðum þar sem hluti seiða sem var settur út, þau voru ekki orðin að fullu sjógönguhæf. Í hinu tilfellinu sem var á Vestfjörðum, þar var um að ræða að við dælingu á seiðum út í brunnbát frá seiðastöð þá hafa einhver af þeim seiðum orðið fyrir hnjaski og s