1.júní 2025 var lögum um þungunarrof breytt í Danmörku. Fram að þeim tíma var þungunarrof heimilt að 12 vikna meðgöngu. Með breytingunni voru lögbundin mörk færð upp í 18 vikur.Konur sem náð hafa 15 ára aldri geta því beðið um þungunarrof, án þess að gefa upp ástæður, fram að 18. viku meðgöngu.Í bráðabirgðatölum frá dönsku heilbrigðismálastofnuninni, og danska ríkisútvarpið greinir frá, kemur fram að tilfellum þungunarrofs eftir 12. viku meðgöngu hefur fjölgað um 47% frá því lögunum var breytt. Hvaða lög gilda um þungunarrof á Íslandi? Þungunarrof er heimilt til loka 22. viku á ÍslandiÍ lögum um þungunarrof stendur að kona, sem óskar þess, eigi rétt á að fá þungun sína rofna fram að lokum 22. viku þungunar.Þungunarrof skal ætíð framkvæmt eins fljótt og auðið er og helst fyrir lok 12. viku