Volodymyr Zelensky forseti Úkraínu er ekki sammála fyrrverandi samráðherra sínum um að rétt sé að boða til kosninga sem fyrst. Slíkt væri aðeins rétt ef það væri vilji til að eyðileggja þjóðina.Mykhailo Fedorov, sem Zelensky rak úr embætti varnarmálaráðherra, krafðist þess í síðustu viku að boðað yrði til kosninga. Nokkur hundruð manns kröfðust svo þess sama í mótmælum. Fedorov naut mikilla vinsælda sem varnarmálaráðherra og því var brottrekstur hans mjög umdeildur.Úkraína er nú undir herlögum og samkvæmt stjórnarskránni má ekki halda kosningar á meðan. Sú ráðstöfun nýtur enn stuðnings meðal mikils meirihluta landsmanna.Zelensky sagði í samtali við fjölmiðla, sem var birt í morgun, að í stríði eins og þessu væri það mikil áhætta að halda kosningar. Þær skapi ákveðna holskeflu sem geti klof