Ormsteiti, uppskeru- og menningarhátíð, er á Egilsstöðum og Fljótsdalshéraði um helgina. Ormahlaup og bændamarkaður er meðal þess sem gestir hafa notið.Hátíðin hófst á föstudag með Vökhlaupinu og skemmtun frá hjólahópnum BMX brós.Snædís Snorradóttir, sem skipuleggur hátíðina, segir hana hafa gengið vel og veðrið hafi leikið við gesti alla helgina. SÚPUKVÖLD OG BÆNDAMARKAÐUR Á föstudagskvöld buðu íbúar Fellabæjar upp á súpur fyrir gesti og gangandi. Í gær var tívolí í Tjarnargarðinum og hið vinsæla Ormahlaup, sem var nú haldið í annað sinn.„Það voru 200 pylsur sem fóru í gær ofan í káta Ormahlaupara. Og Ormahlaupið er svolítið svona skemmtiskokk, ég bjó það til í fyrra til að virkja krakkana til þess að koma og hreyfa sig og hlaupa hátíðina í gang,“ segir Snædís.Hátíðinni lýkur í dag með