„Urmull af krökkum“ og margir undir áhrifum áfengis

Mikið var um unglingadrykkju í miðborg Reykjavíkur á Menningarnótt og þurfti lögregla að hafa afskipti af á fjórða tug ungmenna. Yfirlögregluþjónn segir unglingadrykkju að færast í aukana. FLEST MÁLIN TENGD UNGLINGUM OG DRYKKJU Talsverður erill var hjá lögreglu nýliðna Menningarnótt. Jóhann Karl Þórisson, yfirlögregluþjónn segir meirihluta mála sem bárust á borð lögreglu tengjast hópamyndun ungmenna og unglingadrykkju.„Við höfðum afskipti af einhverjum tugum ungmenna, einhver þrjátíu til fjörutíu ungmenni sem var hellt niður áfengi hjá og haft samband við foreldra. Við leystum upp fjölda af hópum, sem eru hópamyndanir, og stigum inn í ef það voru að byrja stimpingar eða slagsmál,“ segir Jóhann. TVEIR Í HALDI LÖGREGLU VEGNA HNÍFAÁRÁSAR Þá barst lögreglu tilkynning um líkamsárás með hn
„Urmull af krökkum“ og margir undir áhrifum áfengis

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd