Maður sem grunaður er um að hafa drepið einn og sært þrjá í sænskum framhaldsskóla á föstudag hefur verið úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald.Sautján ára stúlka var drepin og þrír unglingsdrengir særðir, þar af tveir alvarlega.Liam Nebel er 18 ára fyrrverandi nemandi við skólann. Hann var handtekinn á vettvangi eftir að lögregla skaut hann í fótinn.Hann er grunaður um manndráp og tilraun til manndráps.Aftonbladet hefur eftir lögmanni Nebels að hann gangist við því að forsendur mæti skilyrðum fyrir gæsluvarðhaldi fyrir manndráp en ekki tilraun til manndráps. RANNSÓKNIN ENN Á FRUMSTIGI Lögreglan segir rannsókn árásarinnar enn vera á frumstigi. Áttatíu manns hafa þegar borið vitni og lögregla segir hundrað bíða eftir að gefa sinn vitnisburð.Í umfjöllun Aftonbladet kemur fram að Liam