Vinnustöðvun flugumferðarstjóra í Noregi í morgun hafði talsverð áhrif á áætlunarflug um Gardermoen-flugvöll og búast stjórnendur hans við miklum töfum framan af degi.Einu flugi til Íslands var aflýst í morgun og öðru frá Keflavíkurflugvelli til Osló vegna vinnustöðvunarinnar sem varði frá klukkan 6:30 að staðartíma til 11:30. Aðrar ferðir virðast vera á áætlun samkvæmt upplýsingum á vef Isavia.Hún hefur áhrif á þúsundir farþega um Gardermoen og langar raðir hafa myndast í flugstöðinni. Flugfélagið Norwegian þurfti að aflýsa 72 ferðum, sem hafði áhrif á um 9.000 farþega.Verkfallsaðgerðir flugumferðarstjóra hófust á föstudag eftir að samningaviðræður hjá ríkissáttasemjara runnu út í sandinn. Engin lausn virðist í sjónmáli og flugumferðarstjórar hafa boðað frekari aðgerðir.