Ferðum SAS til og frá Osló aflýst vegna vinnustöðvunar flugumferðarstjóra

Komu þotu SAS frá Osló til Keflavíkur klukkan 9:50 og brottför klukkan 10:40 hefur verið aflýst, að vþví er fram kemur á vef Isavia. Engin flugumferð verður til og frá Gardermoen-flugvelli við Osló næstu klukkustundir hið minnsta.Það er vegna vinnustöðvunar norskra flugumferðarstjóra. Þeir lögðu niður störf klukkan hálfsjö að staðartíma eða hálffimm að íslenskum tíma. VG vitnar í tilkynningu frá Avinor, sem á og rekur alla helstu flugvelli Noregs.Flugfélagið Norwegian eitt og sér hefur frestað eða fellt niður 70 ferðir og talið er að um níu þúsund farþegar finni fyrir áhrifum.Tafir geta orðið á flugferðum til og frá Noregi og innanlands langt fram eftir degi. Verkfallsaðgerðir flugumferðarstjóra hófust á föstudag eftir að samningaviðræður hjá ríkissáttasemjara runnu út í sandinn. Engin lau
Ferðum SAS til og frá Osló aflýst vegna vinnustöðvunar flugumferðarstjóra

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd