Yfir 300 hafa drukknað í hitabylgjum í Frakklandi

Rúmlega 300 hafa drukknað í Frakklandi í sumar, 14% fleiri en í fyrra. Yfirvöld telja að fjölgunina megi rekja til hitabylgja sem herjað hafa á Evrópu í ár því fólk sæki í auknum mæli í sund til að kæla sig niður.Marina Ferrari, íþrótta- og æskulýðsmálaráðherra Frakklands, segir þróunina vera sorglega en sambærilega við aðstæður í mörgum Evrópuríkjum þar sem hafa verið miklar hitabylgjur í sumar.301 hefur drukknað frá 19. júní. Ferrari segir marga hafa drukknað á stöðum þar sem ekki mátti synda vegna hættulegra aðstæðna.„Margir hafa sótt í að baða sig við áhættusamar aðstæður,“ sagði Ferrari. „Mörg slys hafa orðið á svæðum þar sem ekki má synda og þar sem eftirlit er ekkert.“
Yfir 300 hafa drukknað í hitabylgjum í Frakklandi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd