Hrútaþukl og hrútadómar á Ströndum

Íslandsmeistaramótið hefst klukkan 14:00 á eftir þar sem aðgangur að hátíðinni og sýningum Sauðfjársetursins er ókeypis í tilefni dagsins. Árlegt líflambahappadrætti verður líka á sínum stað.Sauðfjársetrið á Ströndum er safn um sauðfjárbúskap og er til húsa í félagsheimilinu Sævangi við Steingrímsfjörð á Ströndum.Forstöðumaður safnsins er Sigríður Guðmundsdóttir, oftast kölluð Sigga.„Heyrðu, þetta er einn af okkar stóru dögum hjá okkur á hverju sumri, eiginlega lokahnykkurinn en það er Íslandsmeistaramótið í hrútadómum eða hrútaþukli eins og sumir kalla þetta,” segir Sigga og bætir við.„Á mannamáli þýðir það að hér fer fram keppni um að dæma hrúta. Það er svoleiðis að hér fara menn um sveitir og dæma hrúta til að meta gæði þeirra og það eru nokkrir þættir sem lagt er mat á. Hér mætast sem
Hrútaþukl og hrútadómar á Ströndum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd