Karlmaður tekinn af lífi ákærður fyrir að vera útsendari Bandaríkjanna og Ísraels

Karlmaður var líflátinn í Íran í morgun fyrir að veifa vélsög við mótmæli gegn stjórnvöldum í janúar auk þess sem hann var sakaður um að vera útsendari Bandaríkjanna og Ísraels, samkvæmt umjföllun AFP-fréttaveitunnar.Dómsmálayfirvöld segja Majid Adineh hafa verið sakfelldan fyrir samstarf við erlend öfl í mótmælum vegna síhækkandi framfærslukostnaðar sem brutust fyrst út í höfuðborginni Teheran undir lok síðasta árs, breiddust hratt út og urðu að almennu andófi gegn klerkastjórninni.Adineh var einnig ákærður fyrir vísvitandi íkveikjur og ráðabrugg gegn innra öryggi íslamska lýðveldisins. Því hafi hann verið dæmdur til dauða og allar hans eigur gerðar upptækar. Áfrýjun Majid Adineh til hæstaréttar skilaði engu, dómurinn var staðfestur og hann tekinn af lífi í morgun. AFTÖKUR HAFA FÆRST MJ
Karlmaður tekinn af lífi ákærður fyrir að vera útsendari Bandaríkjanna og Ísraels

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd