Útköll hafa verið óvenjumörg hjá Landhelgisgæslunni í sumar samanborið við fyrri sumur.Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar, segir sumarið þó hafa gengið vel. 35% aukning hefur verið í þyrluútköllum. 10% AUKNING Á ÚTKÖLLUM ÞAÐ SEM AF ER ÁRI Gæslan sinnti fjórum útköllum í gær, þar af tveimur á hafi úti.„Það er búið að vera mjög mikið að gera. Þá auðvitað bæði hjá varðstjórum í stjórnstöð gæslunnar og sömuleiðis áhöfnunum, bæði á þyrlunum og síðan flugvélinni,“ segir Ásgeir.Flugvél Landhelgisgæslunnar fylgir þyrlunum í sjúkraútköll á hafi til að leiðbeina varðandi hagstæðustu flugleið og fjarskipti.Ásgeir segir að þrátt fyrir aukið álag hafi sumarið gengið vel, þó að það sé krefjandi þegar þyrlu- og flugfloti gæslunnar sé á svona miklu flugi.Samanborið við árið í fyr