Blautt fram eftir degi en léttir til í kvöld

Í dag er spáð áframhaldandi skúrum á landinu, einkum þó á Suður- og Vesturlandi.Áttin verður suðvestlæg eða breytileg átt, yfirleitt gola eða stinningsgola.Það léttir víða til og lægir í kvöld, hiti frá 10 stigum norðvestantil upp að 20 stigum á Austurlandi. ÁFRAM BLAUTT Á MORGUN Það kemur lægð upp að landinu í fyrramálið sem fer norður yfir landið á morgun.Það mun því blása úr norðri á vestanverðu landinu en annars staðar er spáð suðaustan strekkingi.Talsverð rigning verður á Suðaustur- og Vesturlandi en minni annars staðar. Hiti verður 8 til 15 stig.
Blautt fram eftir degi en léttir til í kvöld

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd