Þyrla indversku strandgæslunnar við æfingar.EPA / IDREES MOHAMMEDBjörgunarsveitir leita 22 skipverja flutningaskips sem sökk undan austurströnd Indlands. Ocean Winner siglir undir fána Panama og var á leið til Singapúr frá hafnarborginni Paradip á austurströnd Indlands samkvæmt upplýsingum MarineTraffic, sem sýnir staðsetningu skipa á rauntíma.Eftir að neyðarkall barst frá skipinu hófu indverski sjóherinn og strandgæslan sameiginlega björgunaraðgerð skipa og flugvéla.Tveimur skipverjum af 24 var bjargað fljótlega að sögn strandgæslunnar. Þjóðerni þeirra hefur ekki verið gefið upp en 20 Kínverjar eru í áhöfn Ocean Winner, þrír frá Mjanmar og einn frá Bangladess.